Dagur 2 í grunnbúðum

AD leiðin

Hulda Gísladóttir skrifar:

Allt gott að frétta af strákunum. Viðar hefur getað hringt í mig daglega þó skilyrðin séu ekki alltaf góð. Í dag hækkuðu þeir sig. Þeir komu fyrir tveimur tjöldum talsvert fyrir ofan grunnbúðir og gengu aftur niður. Á morgun ganga þeir upp aftur og gista í tjöldunum tvær nætur og taka svo tvo hvíldardaga í grunnbúðum eftir það. Þeir eru slakir á góðu tempói og biðja kærlega að heilsa öllum.

Aftur fékk ég láns mynd *hóst*... en þetta er leiðin sem þeir fara upp. Þarna má sjá búðir II og III en búðir I eru neðarlega á hrygg sem sést ekki þarna. Ég fæ alveg í magann þegar ég skoða svona myndir, þetta er enginn smá bratti.

Þangað til næst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Maður fær nú bara í magann af að sjá svona myndir.  Hvað fær menn til að vilja standa í þessu í staðinn fyrir að liggja upp í sófa og horfa á góða mynd he,he,he.

Gangi ykkur vel strákar og farið varlega og passið vel upp á Huldu mína þegar hún kemur til ykkar.

Kveðja Hjördís

Hjördís (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 09:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband